Ákvað að búa til eitt stykki bloggsíðu í tilefni þess að ég er á leið til Costa Rica (!!!). Hef svoldið rekið mig á það í síðustu ferðalögum að það er ekkert mjög hentugt að vera að segja frá því sem er að frétta í sautján mismunandi chat-gluggum á facebook og mun þetta blogg (vonandi) koma í staðinn fyrir það.
(ps.megið samt alveg tala við mig á chattinu) Ég er búin að eiga mjög erfitt með að hætta að hugsa um ferðalög síðan ég kom heim úr síðustu ferð. Held ég sé búin að lesa um það bil öll ferðablogg á internetinu síðan þá. Eftir að vera (næstum) búin að gráta yfir öllum ferðabloggunum og strandarmyndum gat ég ekki verið lengur í kuldanum á Íslandi og er þess vegna á leið til Costa Rica :))) Það land er búið að vera mjög ofarlega á bucketlistanum mínum í mörg ár og er mjög spennt að geta strokað það útaf bucketlistanum (og skafað það af scratch map-inu mínu :))). Þegar ég hef verið að segja fólki frá þessari ferð hef ég nánast undantekningarlaust verið spurð hvort ég sé þá hætt í skólanum, í pásu eða eitthvað. En það er ekki svoleiðis, heldur skipulagði ég skólann þannig að ég er bara í þremur áföngum núna, meðal annars með því að fara í sumarskiptinám til Slóveníu í fyrra. Já ég bjó semsagt til tíma til að ferðast með því að ferðast (mæli með). Ég mun búa hjá host fjölskyldu í San Jose, sem er höfuðborg Costa Rica. Verð í verkefni á vegum AUS á virkum dögum og á svo frí um helgar. Planið er að nota helgarnar til að ferðast um landið og sötra mojito á ströndinni. Ætla líka að læra að surfa, sem ætti ekki að vera vandamál þar sem Costa Rica liggur að bæði Kyrrahafinu og Karabíska hafinu :) Mun svo hafa tvær vikur til að ferðast þegar ég er búin í verkefninu og mun þá fara til Panama og Nicaragua! Kem svo heim í byrjun apríl. Þetta blogg verður semsagt um dvölina mína í Costa Rica og mun svo líka koma með einhver tips um staði/hostel/eitthvað sem ég mæli með (eða mæli ekki með). Mun samt örugglega líka tala um mat. Því ég elska mat. En lofa að halda því í lágmarki. Ciaooo, Sóldís Alda
1 Comment
Hóffý
2/25/2016 10:08:53 am
Hlakka til að fá meira að heyra.
Reply
Leave a Reply. |
Author22 ára viðskiptafræðinemi sem CONTACTARCHIVES
May 2016
CATEGORIES |