Þegar kemur að löndum langar mig sirka að heimsækja þau öll, það er bara svoleiðis.
Ég á mjög erfitt með að vera lengi á sama stað, vil helst alltaf vera að skoða eitthvað nýtt.
Ég útskrifaðist úr viðskiptafræði vorið 2017 og fór þrisvar í skiptinám á þeim tíma - tvisvar til Ljubljana (mæli með!!!) og svo einu sinni til Gold Coast í Ástralíu (mæli mjög mikið með!!!) ásamt því að vera 6 vikur í Costa Rica á einni önninni.
Uppáhalds borgir: Barcelona & Sydney
Uppáhalds lönd: Costa Rica & Ástralía