Þessar síðustu vikur af ferðalaginu voru bestu vikur ferðarinnar, ef ekki bara bestu vikur lífs míns. Hef sagt það eftir ansi margar útlandaferðir, en þessi toppaði allt. Ég er semsagt komin heim núna þegar þetta er skrifað. Eða hitt „heim“. Mér var alveg farið að líða eins og heima hjá mér í Costa Rica og finnst ég alveg smá eiga heima þar líka. En okei, í síðasta bloggi kláraði ég að segja frá þriðju vikunni, þannig að núna er það fjórða vikan (sem var síðasta vikan mín í San José) og svo þessar tvær vikur sem ég var í bakpokaferðalagi um Panama, Nicaragua og Costa Rica :))))) Síðasta vikan í San José leið óþarflega hratt. Þetta var síðasta vikan í verkefninu og það var mjög skrítin tilfinning að vita að þetta var að verða búið. Þessi vinnuvika var svipuð og hinar, nema hvað að einn dag fórum við í einhverskonar skrúðgöngu/messu, mjög furðulegt. Löbbuðum einhvern hring í hverfinu og á meðan hljómuðu allskonar sögur af jesú. Við stoppuðum á nokkrum stöðum þar sem allir fóru með bænir. Það var óvenju heitt þennan dag og þetta var einnig sá dagur sem ég ákvað að það væri frábær hugmynd að fara í svörtum buxum í vinnuna. Mikil mistök. Gangan endaði í messu í kirkjunni sem er í sama húsi og leikskólinn. Allt frekar furðulegt en gaman að upplifa þetta. Á föstudeginum kvaddi ég síðan alla í vinnunni, krakkana og starfsfólkið. Ég þoli ekki kveðjustundir og blóta sjálfri mér nánast undantekningarlaust á svoleiðis stundum fyrir að vera alltaf að setja sjáfla mig í þessar aðstæður. En þetta er víst bara hluti af því að ferðast. Á laugardeginum var svo eina skiptið í ferðinni sem ég hugsaði „fokkk afhverju er ég ekki bara á Íslandi“. Þarna var allt sem fer í taugarnar á mér við Costa Rica (sem er ekki margt) sett saman á svona fjóra klukkutíma. Ég semsagt þurfti að fara í hraðbanka til að taka út colones (local gjaldmiðillinn) og dollara, til að geta borgað á landamærunum þegar ég færi inn í Nicaragua. Þarna úti er þetta ekki jafn einfalt og á Íslandi, að geta bara farið á netið og séð hvar hraðbankar eru, þannig að eina í stöðunni (eins og svo oft áður) var að fara og spyrja einhvern local. Eftir að hafa fengið þær upplýsingar frá einum innfæddum að það væri hraðbanki ekki langt í burtu, nánar tiltekið 200 metrum sunnan við eitthvað plaza. Þar sem ég vissi ekkert hvar þetta plaza var þá sagði þetta mér voða lítið, en heimilisföngin í Costa Rica eru bara svona og voða lítið við því að gera. Ég hoppaði þess vegna upp í næsta strætó til að fara í mallið þar sem ég vissi að það væru nóg af hraðbönkum þar. Næsta mission var að finna hraðbanka sem vildi taka íslenska kortið mitt, því það vilja ekki allir hraðbankar taka svoleiðis. Eins og venjulega í Costa Rica var ekkert verið að splæsa í kort af mall-inu þannig að ég rölti bara um þetta risastóra mall leitandi að ákveðinni tegund af hraðbanka. Eftir langa leit fann ég síðan banka sem samþykkti að taka íslenska kortið mitt. Hann var þó ekkert rosalega samvinnuþýður og ákvað að ég mætti bara taka út einu sinni. Gaman. Ég gat semsagt bara tekið út Colones en ekki dollara, en mig vantaði dollara til að borga á landamærunum í Nicaragua. Þarna voru liðnir svona tveir tímar frá því að ég fór heiman frá mér með það eina verkefni að taka út pening, eitthvað sem hefði tekið svona korter á Íslandi. Ég átti enn eftir að taka út dollara og sá fram á að það gæti alveg tekið aðra tvo tíma svo ég ákvað að fá mér að borða áður en ég héldi áfram í þessu skemmtilega missioni. Pantaði mér smoothie á einhverjum stað, en hann, eins og margir aðrir staðir tók ekki kort og eini peningurinn sem ég var með var colones sem ég þurfti að nota til að borga ferðina sem ég var að fara í daginn eftir. Einu staðirnir sem tóku kort voru gallo pinto staðir (hrísgrjón og baunir) sem var sirka það síðasta sem mig langaði í. Ég hélt þá bara leitinni áfram mjög svöng, fann svo hraðbanka sem virkaði og labbaði út í strætóskýli. Strætóinn minn kemur á svona hraðbraut hjá mall-inu, en svo er svona hliðargata sem liggur samsíða og hann keyrir líka stundum þá götu. Eins og með margt annað þá veit ég ekki betur en að það sé bara tilviljun sem ræður því hvora götuna hann keyrir, þannig að ég stóð bara þarna á milli að fylgjast með báðum götunum. Það er auðvitað engin tímaáætlun fyrir strætóana þannig að ég vissi ekkert hvenær var von á honum þannig að þetta var allt voða óljóst. Komst svo loksins heim, eftir að vera búin að eyða svona fjórum tímum í að taka út pening. Snilld. Á sunnudaginum fórum við svo sirka tíu saman í dagsferð til Isla Tortuga, sem er eyja fyrir utan Costa Rica. Við vorum þrjár stelpur sem vorum allar á vegum sömu samtaka, og nokkrir vinir okkar frá Costa Rica. Þeir voru á bíl þannig að þetta var mjög fín tilbreyting frá því að vera alltaf að taka rútu. Það var tveggja tíma keyrsla til Puntarenas og þaðan tókum við speed boat út í eyjuna. Á leiðinni stoppuðum við til að snorkla, sem var eins og að synda í Nemó myndinni, endalaust af litríkum fiskum og allt mjög framandi. Eftir snorklið sigldum við á eyjuna og VÁ hún var fullkomin. Eitt af mörgum mómentum í ferðinni þar sem ég þurfti næstum að klípa mig til að vera viss um að mig væri ekki að dreyma. Þessi eyja var paradís - alveg tær sjór, hvít strönd og fullt af pálmatrjám. Semsagt umhverfið sem mig dreymir um all day everyday. Þegar við komum biðu okkar fullt af ferskum ávöxtum og nóg af bjór. Við vorum bara í sólbaði, skoðuðum eyjuna og fórum í strandblak, á milli þess sem við kældum okkur niður í sjónum og sötruðum bjór. Draumalífið, ég veit. Þegar sólin var farin og bjórinn búinn sigldum við svo til baka og keyrðum til San José. Kom heim um tíu og átti þá eftir að klára að pakka fyrir næstu ferð, en ég var á leið til Nicaragua morguninn eftir. Ég vaknaði svo klukkan fjögur eftir alltof stuttan svefn, tók strætó niður í bæ og taxa þaðan á rútustöðina. Rútuferðin til Nicaragua var svona sjö tímar, tók rútu til Rivas sem er lítill pueblo nálægt landamærunum, og taxa þaðan á hostelið þar sem ég nennti ekki að díla við alla öskrandi rútubílstjórana sem kepptust við að bjóða mér rútumiða. Hitti Ólöfu, Sóleyju og Aldísi á hostelinu, var líka með þeim í Manuel Antonio nokkrum helgum áður, og við ferðuðumst semsagt saman um Nicaragua. Um nóttina var brjálað rok og það voru engar rúður í gluggunum (mjög eðlilegt þarna úti) og læsingin á herberginu okkar var biluð þannig að hurðin var opin eiginlega alla nóttina þannig að það var rosa mikill gegnumtrekkur og mér leið semí eins og ég myndi fjúka úr kojunni minni. Það gerðist samt ekki. Morguninn eftir fórum við inn í San Juan del Sur (hostelið okkar var upp á fjalli svoldið fyrir utan bæinn) og þurftum að taka út pening. Það tók mjög langan tíma og ég held að við höfum verið búnar að prófa sirka alla hraðbanka í bænum áður en við fundum einn sem virkaði. Tókum rútu til Rivas og þaðan aðra rútu til Granada. Þetta voru ekki venjulegar rútur heldur chicken bus, sem eru svona eins og gömlu bandarísku skólarúturnar sem maður sér í bíómyndum (og held að þetta séu bara þær rútur) svona gular og voða bandarískar. Það kostar mjög mjög lítið að ferðast með chicken bus, en gæðin líka eftir því. Það er engin loftkæling (sem er ekkert grín í næstum 40° hita) og síðan fer rútan ekki af stað fyrr en hún er orðin full. Þá er ég ekki að tala um þegar það situr fólk í öllum sætunum, heldur þegar það komast bókstaflega ekki fleiri inn í rútuna. Getið ímyndað ykkur sveittu stemmninguna. Töskurnar fara svo upp á rútuna og eru bundnar með bandi, voða traustvekjandi. Það fer bara allt upp á þessar rútur, þeir vippuðu t.d. einni þvottavél upp á, voða eðlilegt bara. Þegar við komum til Granada vorum við allar ótrúlega ferskar eftir rútuferðina og í miklu stuði til að labba um og finna hostel (kaldhæðni). Eftir svona hálftíma leit (sem leið eins og þrír klukkutímar) fundum við hostel og allar beint í langþráða kalda sturtu. Granada minnti mig svoldið á Sevilla og bara almennt á Spán, rosa mikil stemmning á götunum og allt ótrúlega litríkt. Röltum svo um bæinn og fengum okkur sushi og kokteila í kvöldmat, á alveg fínum stað, og borguðum rúmlega 1000kr fyrir það. Ef þetta væri svona á Íslandi myndi ég sennilega borða fátt annað en sushi og kokteila. Næsta dag fórum við í dagsferð til Lago Apoyo, sem er vatn rétt hjá Granada. Eins og alltaf í Nicaragua vorum við alltof mörg í bílnum, held við höfum verið svona 12 í 6 manna bíl. Við vorum á einhverju svona restort-i við vatnið sem var mjög fínt. Dagurinn fór í að liggja í sólbaði, synda í vatninu, fara á kayak og allskonar svoleiðis. Rútuferðin til baka var síðan mjög Nicaragua-leg. Bíllinn sem við fórum í hefði semsagt frekar átt heima á safni heldur en á götunum. Það var t.d. ekkert mælaborð og síðan var gat í gólfinu þannig að maður sá niður á götuna, og ýmislegt fleira sem var að. Við rétt höfðum það upp fjallið en á leiðinni niður drap bíllinn á sér þannig að við runnum bara niður, mjög eðlilegt. Þegar við komum til Granada var svo rautt umferðarljós framundan, við gátum að sjálfsögðu ekki stoppað þar sem við hefðum ekkert komið á stað aftur. Einhvernveginn komumst við næstum á áfangastað án þess að þurfa að stoppa og runnum bara áfram, þangað til bíllinn bræddi endanlega úr sér. Rétt náðum að beygja inn á eitthvað plan og bíllinn dó þar. Nokkuð viss um að hann hefur ekki farið aftur á götuna eftir þetta. Við komumst svo í samband við íslenska stelpu sem heitir Heiðrún og er au-pair í Nicaragua, hún býr í Managua (sem er höfuðborgin). Hún kom að sækja okkur um kvöldið og við gistum hjá henni eina nótt. Áttum mjög gott kvöld og vöknuðum svo óþarflega snemma daginn eftir miðað við hvenær við fórum að sofa. Heiðrún sýndi okkur svo borgina og við fórum á markað þar sem við keyptum allskonar dót sem okkur vantaði ekki. Kvöddum svo Heiðrúnu og tókum rútu til León. Vorum þar í tvo daga, sem fóru í að rölta um, skoða merkilegar byggingar og drekka kalda drykki, þar sem það var hátt í 40° hiti. Seinni nóttina vorum við í smá veseni með hostel, þar sem þetta var um páskana og nánast allt uppbókað. Fundum eitt hostel sem átti laust herbergi, það var reyndar ekki með loftkælingu heldur bara viftu, en sættum okkur við það þar sem við sáum ekki fram á að finna neitt betra, þurftum a.m.k. ekki að sofa á götunni. Við vorum svo ótrúlega heppnar að viftan í herberginu okkar gerði ekkert gagn og hitastigið um nóttina var því nálægt 40°, sem var auðvitað voða þægilegt fyrir okkur íslendingana, enda alveg vanar svona hita. Þessu fylgdi líka mikil spenna þar sem maður vissi ekki hvort maður væri að sofna eða hvort það væri að líða yfir mann af hita. Mjög gaman. Mæli með. Vöktum meira og minna alla nóttina (til að njóta hitans, skiljiði) og vorum allar sammála um að þetta hefði verið besta nótt ferðarinnar (ath kaldhæðni). Hélt í alvöru að ég myndi deyja og var mikið að velta fyrir mér að labba í einn hraðbanka sem við höfðum farið í fyrr um daginn sem var með rosa góðri loftkælingu, og sofa bara á gólfinu þar. Morguninn eftir fóru stelpurnar í einhverskonar eldfjallaferð en ég þurfti að græja rútumiða til Costa Rica þannig að ég fór ekki með. Í Nicaragua eru rútumiðakaup ekki eitthvað sem maður gerir á netinu, þannig að ég þurfti bara að gjöra svo vel að labba um og finna skrifstofu sem seldi rútumiða til Costa Rica. Skemmtilegt mission. Fengum okkur svo að borða og síðan var komið að enn einni kveðjustunduinni í ferðinni, þar sem stelpurnar voru á leið upp til Guatemala en ég á leið niður til Costa Rica. Ég tók rútu til San José og private shuttle þaðan til Bocas del Toro (Panama). Það eru engar rútur sem fara beint til Bocas þannig að ég tók þennan fína private shuttle sem innihélt meðal annars hádegismat á voða fínum stað á Karabísku ströndinni. Stundum tekur maður troðfullan chicken bus til að spara 20$ en stundum tekur maður door to door shuttle með öllu inniföldu. It‘s called balance. Shuttle-inn fór með okkur að Almirante og þaðan tókum við speed boat til Bocas del Toro, það eru eyjur í Karabíska hafinu, rétt fyrir utan Panama. Í Bocas hitti ég Kristbjörgu og Unni, þær voru búnar að vera í Suður-Ameríku og ég hitti þær semsagt í Panama og var með þeim í viku. Vorum fjóra daga í Bocas, fyrsta daginn var rigning þannig að það var ekki mikið að gera þann dag. Daginn eftir var hins vegar sól og við fórum á Playa Estrella (Starfish beach) sem er semsagt strönd þar sem eru margir krossfiskum, mjög kúl. Þar var líka tær sjór og hvítur sandur og fullt af pálmatrjám, mjög fullkomið allt saman. Daginn eftir fórum við í island hopping, sem var eins og nafnið gefur til kynna ferð sem innihélt stopp á nokkrum eyjum. Fórum fyrst í Dolphin Bay þar sem við sáum höfrunga og næst stoppuðum við hjá kóralrifi og fórum að snorkla. Bæði mjög gaman. Síðan sigldum við í eyju sem heitir Isla Zapatilla, sem er fallegasti staður sem ég hef séð. Þetta er eyja bara in the middle of nowhere í Karabíska hafinu, mjög lítil (tekur svona hálftíma að labba í kringum hana) og flottustu strendur sem ég hef séð og sjórinn alveg blár og tær. Allt voða óraunverulegt og manni leið eins og maður væri staddur í einhverju draumaheimi (sem þetta svosem var). Eftir nokkra tíma á ströndinni og sjónum sigldum við til baka, stoppuðum á einni eyju og skoðuðum letidýr. Þessi dagur var algjör snilld og einn af þessum dögum sem maður á alltaf eftir að muna eftir. Daginn eftir fórum við til Costa Rica, nánar tiltekið til Puerto Viejo, sem er lítill bær á Karabísku ströndinni. Það er rosa mikil hippamenning þar og stemmning eftir því, annar hver maður með dredda og sirka allir að reykja gras. Við komum um hádegi og eyddum deginum á ströndinni og fórum svo á karókíbar um kvöldið. Næsta dag fórum við í dagsferð til Cahuita, sem er bær/þjóðgarður rétt hjá Puerto Viejo. Þessum degi, eins og mörgum öðrum, var eytt á ströndinni. Næsta dag var svo komið að því að fara aftur „heim“ til San José þar sem ferðalagið mitt var að klárast. Sorgleg staðreynd. Vorum komnar til San José um hádegið, fórum á Subway og vorum svo nokkra tíma í sundlauginni í sólbaði. Þessar síðustu tvær nætur í Costa Rica gisti ég hjá vinafólki sem býr rétt fyrir utan San José. Húsið þeirra er mjög flott (gæti næstum kallað það höll) sem var algjör lúxus svona eftir tvær vikur á skítugum hostelum. Það var t.d. mjög skrítið að geta farið í sturtu án þess að vera í inniskóm og að það væri heitt vatn í sturtunni. Ég átti svo dót hjá host fjölskyldunni minni sem ég þurfti að sækja, semsagt dót sem þau geymdu fyrir mig þessar tvær vikur sem ég var í bakpokaferðalagi. Tók strætó til þeirra, sótti dótið og kvaddi þau, ótrúlega skrítið að taka strætó „heiman frá mér“ í síðasta skipti og það var eiginlega þarna sem ég áttaði mig á að þetta væri að verða búið og ég væri að fara aftur til Íslands og vissi eiginlega bara ekki hvernig mér átti að líða. Fór svo aftur til vinafólks míns sem ég var að gista hjá og borðaði með þeim um kvöldið, þau eru öll mjög nice og hefði alveg verið til í að vera hjá þeim lengur. Ég var ekki komin lengra en til Washington þegar ég byrjaði að sakna Costa Rica, þar sem hitastigið þar var óþarflega nálægt núlli. Lenti þar svoldið seint um kvöld og tók strætó og metro á hostelið. Það voru allir í úlpum og kuldaskóm en ég bara á sandölum stuttermabol. Ég fékk semsagt ekki memo-ið um að það væri vetur í Washington í apríl. Náði þó að draga eina gollu upp úr töskunni minni, sem var sennilega hlýjasta flíkin sem ég var með. Komst svo loksins upp á hostel, alveg frosin á tánum og fór beint í heita sturtu. Lenti svo í mjög steiktu atviki um nóttina. Vaknaði við að einhver gaur var að beina vasaljósi í andlitið á mér og spyrja hvað ég héti, voða eðlilegt bara. Áður en ég náði að svara því var hann búinn að spyrja næstu spurningu „do you have a reservation?“ Held ég hafi aldrei verið jafn lost í lífi mínu og horfði svo á hann bara „who are you and why are you waking me up in the middle of the night and asking for my name?!“. Þá var þetta einhver gaur sem var að vinna á hostelinu, þau höfðu greinilega yfirbókað í herbergið og vöktu þess vegna bara alla í herberginu um miðja nótt til að athuga hvort þeir væru með bókað rúm. Frábær hugmynd. Vaknaði svo snemma daginn eftir til að hafa tíma til að versla og skoða Washington. Búðirnar opnuðu klukkan tíu þannig að ég byrjaði á að skoða hvíta húsið og fá mér að borða, og eins og týpískur íslendingur var ég mjög spennt að fara í h&m og var mætt þangað á slaginu tíu. Það voru ekki jafn mikið af búðum í Washington og ég hélt, fór í Forever 21 líka en síðan var ekkert mikið af öðrum spennandi búðum í miðbænum. Fór þá bara aftur í h&m og rölti um þangað til ég þurfti að fara upp á flugvöll. Washington heillaði mig ekkert rosalega, það var alveg fínt að vera þarna þennan eina dag, en myndi ekkert sérstaklega vilja fara þangað aftur. Þarna var svo bara ferðin mín búin og eina sem var eftir var að fljúga heim til Íslands. Get ekki alveg lýst því hvað það var skrítið. Það var einhvernveginn geðveikt fáránlegt að hugsa um að ég væri að fara aftur til Íslands og lífið væri að fara að vera „venjulegt“ aftur. Þessi ferð er það skemmtilegasta sem ég hef gert og alveg besta ákvörðun sem ég hef tekið. Þetta var alveg smá púsl með skólann og kostaði líka alveg sitt, en svo mikið þess virði! Hvet alla rosa mikið til að ferðast og prófa eitthvað nýtt, ekkert endilega til Costa Rica (þó ég geti algjörlega mælt með því landi). Þetta er svo mikil upplifun og svo mikið gaman, engir tveir dagar eru eins og allt er svo spennandi, og ef þú spyrð mig þá eru ferðalög það besta í heimi.
En það verða semsagt ekki fleiri blogg um þessa ferð, en ég er að fara til Möltu og Slóveníu og eflaust einhverra fleiri landa í sumar þannig að það koma mögulega einhver blogg þá :))))))))
0 Comments
Núna er ég búin að vera hér í fjórar vikur sem þýðir að það eru bara tvær vikur eftir. Þetta er búið að líða alltof hratt. Mér finnst smá eins og ég hafi komið hingað í gær en þegar ég hugsa um allt sem ég er búin að gera finnst mér ég vera búin að vera hérna miklu lengur en fjórar vikur. Eins og ég óttaðist er ég orðin mjög ástfangin af Costa Rica, sem var svosem algjörlega dæmt til að gerast þar sem ég elska sól og strendur og bara allt svona tropical, og Costa Rica er nákvæmlega þannig. En allavegana. Það er margt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast og ég man alveg pottþétt ekki eftir öllu. Núna væri þess vegna góður tími til að draga upp dagbókina sem ég ætlaði að vera rosa dugleg að skrifa í, en hún hefur legið óopnuð ofan í tösku síðustu fjórar vikur (nánar tiltekið síðan að ég kom hingað út) svo það er frekar lítið gagn í henni. Mun semsagt bara skrifa um svona það sem ég man eftir (sem eru aðallega helgarnar). Virku dagarnir eru allir frekar svipaðir svo þeir renna svoldið saman. Held ég láti bara nokkrar myndir duga fyrir virku dagana :)))) Þar síðustu helgi var ég bara hérna í San Jose. Á laugardeginum fór ég í mall sem heitir Multiplaza (stærsta mall í Costa Rica :))) ) með einni stelpu frá Austurríki sem er að vinna með mér og annarri stelpu frá Danmörku sem er hérna í öðru verkefni en með sömu samtökum. Í þessu malli eru búðir eins og Bershka (uppáhalds) og Forever 21, en málið er að þær eru miklu dýrari hérna heldur en t.d. í Barcelona (þá er ég að tala um bara jafn dýr og föt á Íslandi) þannig að við versluðum ekki mikið. Fengum okkur svo að borða á rosa amerískum veitingastað og var það sirka eina máltíð ferðarinnar sem hefur ekki innihaldið hrísgrjón (já það eru líka hrísgrjón í morgunmat, meira um það aðeins neðar). Um kvöldið fórum við svo að djamma með nokkrum vinum okkar frá Costa Rica á stað sem ég man ekki hvað heitir, en hann var mjög fancy. Það voru þrjár hæðir, sitthvor tónlist á þeim öllum, og síðan var líka svona rooftop sem maður gat farið út á, mjög kúl. Það var líka rosa mikði úrval af drykkjum sem kostuðu ekki einu sinni helminginn af því sem það myndi kosta á Íslandi. Veit að ég er alltaf að tala um veðrið hérna en þarf bara að minnast á hvað það er þægilegt að fara á djammið þegar það er sama hitastig inni og úti og sleppa þar með við þetta rosa íslenska að vilja helst hlaupa á milli staða til að þurfa að vera sem minnst úti í kuldanum. Daginn eftir, sem var sunnudagur, fann ég svo það eina sem vantaði í lífið mitt hérna í San Jose, sundlaug!!! Fram að því var nefnilega enginn staður þar sem maður gat verið í sólbaði (það að vera í sól og blíðu en geta samt ekki farið í sólbað er alveg jafn pirrandi og það hljómar). Það eru nefnilega ekkert allir með garð hérna og þrátt fyrir mikið google fundum við engar almenningssundlaugar í San Jose. Þá datt mér í hug að fara bara á eitthvað hostel sem væri með sundlaug og sjá hvort það væri ekki hægt að semja um að borga bara fyrir að fara í sundlaugina. Það gekk upp á fyrsta hostelinu sem við fórum á (Costa Rica Backpackers, mæli með). Hittum á einhvern voða nice gaur og náðum að díla við hann um að borga (næstum ekkert) fyrir að fara í sundlaugina. Mikil gleði. Þetta er rosa kúl sundlaugagarður með pálmatrjám útum allt og svo er barsvona fimmtán skrefum frá sundlauginni (þarf maður eitthvað meira?). Síðan hittir maður alltaf allskonar spennandi fólk, þar sem hostel eru yfirleitt samansafn af fólki sem elskar að ferðast og hefur komið á allskonar spennandi staði. Næsta helgi var líka mjög skemmtileg. Á laugardeginum byrjðum við á því að fara í þessa nýfundnu sundlaug, enda ekki hægt að fá nóg af því að liggja í sólbaði og sötra kalda drykki. Fórum heim upp úr hádegi og ég var síðan á leið í brúðkaup um kvöldið. Systir pabba bjó semsagt hérna í Costa Rica í næstum tvö ár fyrir ansi mörgum árum og þetta var vinafólk hennar sem var að gifta sig. Þau búa í Escazú sem var víst einu sinni sér bær en er núna í rauninni bara eins og úthverfi í San Jose. Ég tók strætó þangað, hann stoppaði í einhverjum garði og þau búa rétt hjá honum. Það þýddi samt ekki að ég hafi ekki farið létt með að villast á leiðinni. Þegar ég var í símanum að fá leiðbeiningar um hvert ég ætti að fara var einhver gaur, svona 30-40 ára, að labba fyrir framan mig og heyrði greinilega hvert ég var að fara og heyrði eflfaust líka að ég var ekki alveg með áttirnar á hreinu. Ég átti semsagt fyrst að labba að einu bakarí og hann sagðist vera á leiðinni þangað og að ég gæti labbað samferða honum, og ég bara okei snilld, villist þá amk ekki á meðan. Síðan erum við komin að bakaríinu og ég var búin að fá leiðbeiningar um hvert ég ætti að fara þaðan svo ég fylgdi þeim bara (eða reyndi það) og gaurinn ennþá að labba með mér, sem var skrítið því ég vissi ekki betur en að hann væri að fara í bakaríið. Ég átti að koma að brú fljótlega eftir að ég færi framhjá bakaríinu, ég kom hins vegar aldrei að neinni brú svo ég snéri við. Svo komum við aftur að bakaríinu og ég bara okei nú hlýtur hann að fara þangað sem hann var að fara, en nei hann hélt alltaf bara áfram að labba með mér. Síðan var hann farinn að segja mér að hann væri nýhættur með kærustunni sinni og eitthvað og gerði sig alls ekki líklegan til að fara. Þegar við vorum komin að húsinu fór hann svo að spyrja hvort ég ætti kærasta. Ég var mjög fljót að svara því játandi svona í þeirri von að þá myndi hann mögulega fara. Það gerðist hins vegar ekki. Ég var nokkrum sinnum búin að reyna að kveðja hann og gera mig líklega til að fara inn, en hann byrjaði alltaf að labba á eftir mér og bara bíddu, bíddu! Þetta var orðið svona frekar óþægilegt og ekki skánaði það þegar hann fór að spyrja mig hvort kærastinn minn væri að fara í brúðkaupið og hvort mér hefði verið boðið þið vitið bara mér eða ég+1 (svona eins og hann ætlaði bara að koma með mér). Það vildi svo heppilega til að það löbbuðum síðan hjón framhjá sem voru á leið í brúðkaupið og þau spurðu mig hvort ég væri að fara þangað líka og byrjðu að spjalla við mig, þannig að ég náði svona að labba bara með þeim inn og skilja gaurinn þannig eftir. Það er alveg svoldið af uppáþrengjandi gaurum hérna en þetta er alveg það versta sem ég hef lent í haha. Brúðkaupið var síðan mjög flott, þetta var haldið úti í garðinum hjá þeim og var allt mjög fancy. Þetta átti að byrja klukkan sex, þannig að ég mætti sirka þá og bjóst við að þetta myndi byrja þá. Það var síðan mjög fyndið að þegar ég kom var bara enakumælandi fólk komið og maður heyrði enga spænsku, ekki af því að það var engum frá Costa Rica boðið, heldur af því að á tico time þýðir klukkan sex meira svona sjö, þannig að fólkið frá Costa Rica fór svona að tínast inn upp úr sjö. Það var svosem allt í lagi því athöfnin byrjaði síðan ekki fyrr en svona hálf átta. Það var síðan rosa fínn matur og eitt af fáum skiptum í ferðinni sem ég fékk eitthvað annað en gallo pinto (hrísgrjón og baunir). Ég lenti á borði með fólki frá Madrid sem var mjög þægilegt því þó ég skilji alveg spænskuna hérna þá er ég miklu vanari spænskunni sem er töluð á Spáni. Það var fólk þarna frá alls konar löndum þannig að ég náði að spjalla við fullt af fólk frá mismunandi löndum sem er alltaf skemmtilegt. Eftir matinn fóru svo allir að dansa og við dönsuðum eitthvað frameftir. Það var síðan ekki mikill tími til að sofa því morguninn eftir var ég að fara í dagsferð til Jacó með einni stelpu frá Austurríki og annarri frá Danmörku. Jacó er strönd hérna Kyrrahafsmeginn, alls ekkert flottasta ströndin í Costa Rica en toppar samt alveg flestar strendur sem ég hef farið á. Planið var semsagt að læra að surfa, sem er eitthvað sem er búið að vera á bucketlistanum mínum svoldið lengi. Það er mikið af surfskólum í Jacó þannig að við bókuðum ekkert fyrirfram heldur ætluðum bara að rölta um og finna eitthvað. Við hittum svo stelpu í rútunni sem er frá Bandaríkjunum og er að vinna á hosteli í Jacó og á því hosteli er einmitt boðið upp á surfkennslu. Við fórum með henni þangað og pöntuðum eitt stykki surftíma sem átti að byrja tveimur tímum seinna. Notuðum þessa tvo tíma til að liggja í sólbaði og borða fullt af framandi ávöxtum (svona eins og maður gerir venjulega í mars). Við mættum svo upp á hostelið og þar byrjaði surftíminn. Það fyrsta sem hún sagði við okkur var að ef við hefðum einhverja reynslu af skíðum eða bretti þá myndi það hjálpa rosa mikið því þetta snérist aðallega um jafnvægi. Ég ofpeppaði sjálfa mig mögulega aðeins of mikið við þessar fréttir (var að æfa skíði í ~10 ár). Ofpeppaði mig alveg það mikið að ég var alveg að spá í að sleppa bara þessum surftíma, ég væri með svo mikla reynslu af skíðum að ég þyrfti eflaust ekkert á neinni surfkennslu að halda. Ég skráði mig sem betur fer ekki úr þessum surftíma og þurfti algjörlega á honum að halda. Við byrjuðum á að læra bara á ströndinni (það gekk vel) og svo fórum við í sjóinn (það ekki ekki eins vel). Byrjaði á að fá brettið í hausinn eftir að ég missti örlítið stjórn á því í einhverri öldu sem kom yfir mig. Mér tókst síðan einhvernveginn að lenda undir brettinu (nei ég veit ekki hvernig það gerðist) og náði mér þannig í þennan fína skurð á hnéð. Þetta var samt allt upp á við eftir þetta og við náðum allar að standa upp eftir nokkrar tilraunir (það var mjög kúl). Tíminn leið allt of hratt og það var ótrúlega pirrandi að þurfa að hætta svona þegar maður var eiginlega búin að ná þessu. Maturinn hérna er síðan alveg efni í sér kafla þar sem hann er allt öðruvísi en á Íslandi. Eins og ég sagði áðan þá er gallo pinto (hrísgrón og baunir) í öll mál, og já líka í morgunmat. Fyrsta morguninn hérna hafði ég hugsað mér að fá mér bara einhvern ávöxt í morgunmat, enda alls ekki með lyst á einhverjum rosalegum mat klukkan sjö á morgunanna. Þegar ég kom svo fram voru vissulega einhverjir ávextir á diskinummínum, en þar voru líka hrísgrjón og baunir ásamt kjöti og steiktum bönunum í það miklu magni að það hefði auðveldlega getað endst mér fram að kvöldmat. Þessu átti ég svo bara að skófla í mig klukkan sjö um morguninn. Ég náði að koma einhverju af þessu ofan í mig og reyndi svo að dreifa restinni af matnum þannig á diskinn að það lyti út fyrir að það væri ekkert svo mikið eftir (er búin að mastera þá tækni hérna úti). Ég borða svo hádegismat í vinnunni og þar eru líka alltaf hrísgrjón og baunir og svo yfirleitt kjöt eða fiskur með því. Í kvöldmat er svo enn og aftur hrísgrjón og baunir og með því er oft ofsoðinn kjúklingur, ofsteiktir bananar, framandi grænmeti eða eitthvað álíka furðulegt. Fyrir svona viku fékk ég samt alveg extra skrítinn kvöldmat, en hann samanstóð af spaghettíi, kartöflumús og hrísgrjón (?????). Fyrst hélt ég að það ætti kannski bara eftir að koma með eitthvað kjöt, sem gæti þá mögulega útskýrt tilvist kartöflumúsarinnar, en nei það var ekkert kjöt, bara spaghettí, kartöflumús og hrísgrjón. Ávextir hérna eru mjög ódýrir og það eru líka fullt af framandi ávöxtum sem ég hef aldrei séð á Íslandi. Smoothies líka mjög góðir og kosta nánast ekkert. Annað sem mér finnst pirrandi við matinn hérna er að það er oft erfitt að finna venjulega hluti eins og djús án þess að þeir séu með syrki. Þetta gæti hljómað eins og ég sé rosa healthy og vilji helst engan sykur en það er ekki alveg þannig (metið mitt í nammibindindi verður ekki talið í dögum heldur klukkutímum). En ég þoli ekki þegar það er sykur í hlutum eins og djús þar sem þarf ekki sykur því þá get ég ekki borðað jafn mikið af nammi og svoleiðis sem ég vill hafa sykur í :)))) Held ég hafi ekki alveg gert mér grein fyrir því hvað ég er búin að gera mikið hérna fyrr en ég fór að skrifa þetta blogg, ég er ekki næstum búin að ná að skrifa um allt sem ég er búin að vera að gera en það kemur bara í næsta bloggi þar sem ég er núna í bakpokaferðalagi og hef þess vegna ekkert mikinn tíma til að blogga!
Næsta blogg kemur síðan (vonandi) fljótlega :)))) JÆJA Er búin að vera hér í Costa Rica í rúma viku og allt búið að ganga mjög vel. Eða svona flest. Ferðalagið frá Íslandi var rúmlega sólarhringur og það gekk algjörlega áfallalaust fyrir sig. Flaug til Washington og lenti þar klukkan svona 5 (10 á íslenskum tíma), customs og immigration gekk hratt og ég var komin inn í landið svona klukktíma eftir að ég lenti. Tímamismunurinn var rosa mikið að vinna með mér þarna þar sem ég græddi heila fimm klukkutíma og hafði nógan tíma til að finna mér kvöldmat og horfa á nokkra friends þætti. Átti síðan flug klukkan 9 um morguninn frá Washington. Á flugvellinum fékk ég no joke besta boost sem ég hef smakkað, með jarðaberjum og sítrónu og fullt af klökum, mjög mjög gott. Lenti svo í San Jose klukkan 1 og átti mjög erfitt með að meðtaka það að þetta væri í alvörunni að gerast og að ég væri í alvöru stödd í Costa Rica. Þegar ég kom út af flugvellinum tók á móti mér alveg annar heimur, mjög heitt og svona milljón manns fyrir utan flugvöllinn með allskonar skilti og enn fleiri öskrandi leigubílstjórar að bjóða manni far. Fann þó fljótlega gaurinn frá ACI (samtökunum hérna úti) sem var að sækja mig og hann skutlaði mér til host fjölskyldunnar. Ég virðist alltaf ætla að vera jafn heppin með host fjölskyldur/meðleigjendur/herbergisfélaga sama hvert í heiminum mér dettur í hug að fara. Host mamma er semsagt mjög nice og vill allt fyrir mig gera. Síðan búa fjórir krakkarnir hennar hérna líka, þó að þau séu öll á aldrinum 26-36 ára en það er víst voða eðlilegt hérna úti. Þau tala bara spænsku sem er mjög fínt, var búin að sakna þess mjög mikið að tala spænsku síðan ég fór frá Barcelona í fyrra. Fólkið hér talar með öðruvísi hreim en Spánverjar, miklu svona mýkri hreim, en ég skil allt sem þau segja og þau skilja mig þannig að það hefur ekki verið neitt vandamál. Ég tala víst með mjög spænskum hreim þannig að ég hef svoldið verið að lenda í því að fólk haldi að ég sé frá Spáni. En já þegar ég kom til fjölskyldunnar var bara host mamma heima, hún var á leið í fjallgöngu og ætlaði svo líka að mála flöksur og spurði hvort ég vildi koma með. Ég var gjörsamlega nýkomin inn úr dyrunum en jú var svosem alveg til í að fara með, henti töskunum inn í herbergið mitt og fór í stuttbuxur þar sem hér er alls ekki veður fyrir venjulegar buxur. Þessi svokallaða fjallganga reyndist hins vegar bara vera smá labb hérna ofar í hverfið, jú þetta var vissulega upp í móti en hefði seint flokkast sem fjallganga. Vorum semsagt að labba til vinkonu hennar og þar vorum við að fara að mála þessar flöskur. Þarna var ég búin að vera í Costa Rica í kannski klukkutíma og sat þarna in the middle of nowhere að mála flösku sem var búið að velta upp úr sandi, mjög random allt saman. Þarna kom síðan fyrsta semí menningarsjokkið, ég fór aðeins fram og svo þegar ég kom til baka var komið kaffi á borðið og þau öll voða einbeitt að fara með einhverja mjög langa borðbæn eins og ekkert væri sjálfsagðara. Síðan oft þegar ég spyr t.d.host mömmu „hvað segiru?“ þá svarar hún oft „bien, gracias a dios“ sem þýðir góð, þökk sé guði. Semsagt svoldið trúaðra land en Ísland en þetta var samt í eina skiptið sem ég hef heyrt þau fara með borðbæn. Daginn eftir fór ég svo á orientation meeting hjá samtökunum hérna úti sem fjallaði um bara landið, verkefnið, menninguna og allskonar praktísk atriði sem við þurfum að vita. Ákvað síðan að vera ekkert að láta reyna á það hversu lengi ég gæti lifað án þess að vera með 3g net þannig að mitt fyrsta verkefni eftir fundinn var að kaupa mér nýtt simkort. Á fimmtudeginum byrjaði ég svo í verkefninu, er að vinna á leikskóla hérna í San Jose. Á deildinni sem ég er á eru yfirleitt svona 10 krakkar og þau eru á aldrinum 1,5-2,5 ára. Við erum þrjár að vinna á þessari deild, hinar tvær eru 19 og 26 ára og eru frá Costa Rica. Krakkarnir eru flest mjög þægileg en það er einn gaur sem er mjög erfiður og alltaf með eitthvað vesen. Oftar en ekki er hann bara að labba um og öskra PUTA (sem þýðir bitch). Eigum mjög erfitt með að hlæja ekki að þessu því það er eitthvað mjög fyndið við tveggja ára krakka sem kallar alla bitch. Síðan minnir þetta mig líka alltaf á atriðið í friends þar sem chandler segir i think im gonna go before you start calling everybody bitch, og joey segir what are you talking about, bitch! (fyndið ef þið horfið á friends, annars ekki haha). En allavegana, er að vinna alla virka daga frá 9-3 og venjulegur dagur hjá mér er þannig að ég vakna klukkan 7, sem hljómaði upphaflega eins og mín versta martröð þar sem ég er mjög mikil B manneskja, en hérna er sól og 20° klukkan 7 þannig að það er alls ekki jafn slæmt og það hljómar. Tek síðan strætó í vinnuna svona um hálf 8, en hérna er engin tímaáætlun fyrir strætó, þeir koma bara þegar þeir koma, sem er mjög lýsandi fyrir allar tímasetningar hér, hlutirnir gerast bara þegar þeir gerast og það er enginn að stressa sig neitt á því (tico time). Hef heldur ekki rekist á neitt kort af strætóleiðunum, það vita einhvernveginn bara allir hvert strætóarnir fara og hvar þeir stoppa. Stundum eru líka ekki stoppistöðvar heldur er fólk bara á götunni þar sem hann kemur og veifar og þá stoppar hann, þó að það séu fullt af bílum á eftir honum. Þeir eru líka oft ekkert að hafa fyrir því að loka hurðunum þannig að fólk getur nánast bara komið inn á ferð. Semsagt allt mjög tjillað hérna. Tek einn strætó í miðbæinn og þarf svo að labba í svona 10 mínútur í gegnum miðbæinn til að taka næsta strætó. Á þeirri stoppistöð hitti ég hinar tvær stelpurnar sem eru í sama prógrami og ég, ein frá Ítalíu og hin frá Austurríki, og við tökum strætó saman í vinnuna. Erum með krakkana inn á deild til svona hálf 11, þá er ávaxtastund, svo er hádegismatur um 12 og eftir það fara þau að sofa og sofa yfirleitt til svona 3. Þannig að frá því að þau sofna klukkan sirka 1 og þangað til þau vakna klukkan 3 erum við bara að spjalla og tjilla, voða þægilegt. Eftir vinnu tökum við svo strætó saman í miðbæinn en tökum allar sitthvorn strætóinn heim til okkar. Röltum oft eitthvað um í miðbænum áður en við förum heim og styrkjum starbucks líka mjög reglulega. Núna um síðustu helgi fór ég á strönd sem heitir Manuel Antonio með þremur íslenskum stelpum sem eru hérna í bakpokaferðalagi. Manuel Antonio er í alvöru fallegasti staður sem ég hef komið á!! Pálmatré útum allt, hvít strönd, tær sjór og öll uppáhalds spænsku lögin mín í gangi á öllum veitingastöðum. Þetta var samt líka heitasti staður sem ég hef verið á, tæplega 40° í skugga. Sólin hérna er miklu sterkari en í evrópu og maður hefði næstum geta brunnið bara með því að horfa á sólina. Vorum mest í sjónum og í sundlauginni á milli þess sem við þömbuðum ískalda smoothies svona til að reyna að kæla okkur niður. Ég fór síðan heim til San Jose á sunnudeginum, með mjög þungan bakpoka sem þrýsti svona skemmtilega á semí brunnu axlirnar mínar (já það er jafn óþægilegt og það hljómar). Ferðalagið heim var síðan mesta djók sem ég hef lent í (en góð saga svona eftir á). Það voru rútur til San Jose klukkan 17, 17.15 og 17.30 og ég átti miða klukkan 17.15. Bjóst nú ekki við að hún færi á þeim tíma þar sem tímasetningar á rútum hérna eru meira til viðmiðunar (ef þó það). Rúturnar voru allar seinar, en það fáránlegasta var að 17.30 rútan kom svona 45 mínútum á undan 17.15 rútunni (allt eðlilegt við það bara). Þegar við fórum að nálgast San Jose tók við mesta umferðarteppa sem ég hef séð (fimm umferðin á Miklubrautinni á ekkert í þetta). Hélt fyrst að það væru vegaframkvæmdir í gangi en síðan voru fullt af sölumönnum að labba á milli bílanna að selja allskonar dót þannig að þetta er sennilega bara sunnudagsumferðin. Ég ákvað síðan að taka taxa heim, sem hljómar mjög einfalt, en málið er að hér eru ekki götuheiti (það eru götuheiti ef maður skoðar kort en þau eru ekki notuð, nema bara alveg í miðbænum). Öll heimilisföngin miðast við staði, eins og heimilisfangið á ACI skrifstofunni er eitthvað 150 metrum austan við Taco Bell (hvað ef maður veit ekki hvar taco bell er? hvernig á maður að vita hvenær maður er kominn nákvæmlega 150 metra?). Mjög steikt. Ég sagði leigubílstjóranum heimilisfangið mitt, sem er nafnið á hverfinu, fyrsta appelsínugula húsið til hægri, og nafnið á skólanum sem er hérna í götunni. Jú hann vissi hvar þetta hverfi var en hafði ekki heyrt um þennan skóla (enda bara einhver pínulítill skóli) og þar með vissi hann ekki hvar ég átti heima. Það var semsagt ég sem átti þá að rata heim, sem var alls ekki vænlegt til árangurs þar sem a)það var svartamyrkur b)ég hef aldrei reynt að leggja þessa leið á minnið c)ég er mjög léleg að rata d)ég er mjög léleg að rata við vorum komin í átt að hverfinu mínu og hann alltaf að spurja hvort ég kannaðist ekki við mig, jú ég kannaðist við eitthvað en mundi samt ekkert leiðina. Síðan komum við að hringtorgi og hann bara já er það vinstri eða hægri hér, og ég bara já það klárlega hægri (en það hefði alveg eins getað verið vinstri) og þetta var allt svoldið svoleiðis. Einhvernveginn hafðist þetta samt og ég komst heim á endanum, en þetta var samt ekki alveg búið. Það er járnhlið fyrir framan húsið mitt (og á sirka öllum húsum hér) og ég er með lykil af því. Hurðin er svo alltaf opin en þarna var hún læst (frábært). Ég vissi að það væru líklega allir sofandi en prófaði samt að banka en það kom enginn. Hér eru svo rimlar fyrir gluggunum svo það að klifra inn um glugga var ekki option. Síminn minn var 1% og var búinn að hanga í því ansi lengi svo ég sá ekki fram á að hann myndi endast í eitt símtal. Ákvað þá að prófa hvort lykillinn gengi ekki bara að hurðinni líka, hann komst amk í gatið svo ég hugsaði með mér að ef ég myndi nú bara snúa nógu andskoti fast þá myndi þetta örugglega virka (það meikaði sens in the moment). Það gerðist hins vegar ekki, heldur beyglaðist lykillinn um svona 90° og var gjörsamlega afmyndaður. Þarna var ég ekki bara læst úti, heldur líka læst inni á veröndinni því lykillinn var ónýtur svo ég gat ekki opnað hliðið. Mín eina von var þá þetta 1% í símanum mínum, semsagt max 1 símtal. Hringdi í host mömmu og hef sjaldan verið jafn stressuð þar sem síminn minn hefði getað dáið any minute og þá hefði ég þurft að gista bara þarna úti. En hún svaraði, síminn dó reyndar í miðri setningu en hún fattaði hvað ég var að meina og kom að opna (mikil gleði). Þegar ég kom inn þurfti ég svo að laga þennan blessaða lykil því host mamma var alltaf að ítreka við mig að passa hann, svo ég gat ekki alveg sýnt henni lykilinn í þessu ástandi. Reyndi að rétta hann af m.a. með því að standa ofan á honum með töskuna mína í fanginu en það skilaði mjög litlum árangri. Náði semí að laga hann með því að setja hann aftur í skráargatið og snúa honum til baka en hann var samt smá rifinn (???) og virkaði ekki. Hann leit amk mun betur út svo ég sýndi host mömmu hann og hún sagði að hann hefði líklega bara bráðnað í hitanum á ströndinni (basic). Ég gerði semsagt ráð fyrir því að það að passa upp á lykilinn þýddi bara að týna honum ekki, bjóst ekki við að þurfa að passa að hann myndi ekki bráðna. En er núna komin með nýjan lykil sem ég ætla ekki að bræða :)))) Það sem ég elska mest við Costa Rica er samt veðrið. Það er sumar hér sirka 6 mánuði á ári og þá rignir bara nánast ekkert (ekki skrítið að þetta sé hamingjusamasta land í heimi!!!). Það eru alltaf svona 20-30° hér í San Jose þannig að það er bara sama hitastig inni og úti. Húsin hér eru samt ekki upphituð (eða ekki mitt hús amk) þannig að það er stundum kalt á nóttunni (en það gerist ekki á ströndinni því þar er miklu heitara). Ótrúlega þægilegt að þurfa ekkert að pæla í veðrinu heldur vita bara alltaf að það verður sól og hiti (ísland nenniru plís að step up your game)
En ætla að láta þetta duga í bili þar sem þetta er orðið svoldið lengra en ég ætlaði mér! Hasta pronto, Sóldís Ákvað að búa til eitt stykki bloggsíðu í tilefni þess að ég er á leið til Costa Rica (!!!). Hef svoldið rekið mig á það í síðustu ferðalögum að það er ekkert mjög hentugt að vera að segja frá því sem er að frétta í sautján mismunandi chat-gluggum á facebook og mun þetta blogg (vonandi) koma í staðinn fyrir það.
(ps.megið samt alveg tala við mig á chattinu) Ég er búin að eiga mjög erfitt með að hætta að hugsa um ferðalög síðan ég kom heim úr síðustu ferð. Held ég sé búin að lesa um það bil öll ferðablogg á internetinu síðan þá. Eftir að vera (næstum) búin að gráta yfir öllum ferðabloggunum og strandarmyndum gat ég ekki verið lengur í kuldanum á Íslandi og er þess vegna á leið til Costa Rica :))) Það land er búið að vera mjög ofarlega á bucketlistanum mínum í mörg ár og er mjög spennt að geta strokað það útaf bucketlistanum (og skafað það af scratch map-inu mínu :))). Þegar ég hef verið að segja fólki frá þessari ferð hef ég nánast undantekningarlaust verið spurð hvort ég sé þá hætt í skólanum, í pásu eða eitthvað. En það er ekki svoleiðis, heldur skipulagði ég skólann þannig að ég er bara í þremur áföngum núna, meðal annars með því að fara í sumarskiptinám til Slóveníu í fyrra. Já ég bjó semsagt til tíma til að ferðast með því að ferðast (mæli með). Ég mun búa hjá host fjölskyldu í San Jose, sem er höfuðborg Costa Rica. Verð í verkefni á vegum AUS á virkum dögum og á svo frí um helgar. Planið er að nota helgarnar til að ferðast um landið og sötra mojito á ströndinni. Ætla líka að læra að surfa, sem ætti ekki að vera vandamál þar sem Costa Rica liggur að bæði Kyrrahafinu og Karabíska hafinu :) Mun svo hafa tvær vikur til að ferðast þegar ég er búin í verkefninu og mun þá fara til Panama og Nicaragua! Kem svo heim í byrjun apríl. Þetta blogg verður semsagt um dvölina mína í Costa Rica og mun svo líka koma með einhver tips um staði/hostel/eitthvað sem ég mæli með (eða mæli ekki með). Mun samt örugglega líka tala um mat. Því ég elska mat. En lofa að halda því í lágmarki. Ciaooo, Sóldís Alda |
Author22 ára viðskiptafræðinemi sem CONTACTARCHIVES
May 2016
CATEGORIES |